Greta Salóme and Jónsi: "Mundu eftir mér"

printer-friendly version (lyrics)

© Muzland.info/ - Chord Chart Server
© Anton Gavzov

© Compiler: Anton Gavzov // chief of the project (https://Muzland.info)
± BPM (tempo): ♩ = 133 beats per minute

Höfundur texta: Greta Salóme Stefánsdóttir / Höfundur lags: Greta Salóme Stefánsdóttir
Lyrics and Music by Greta Salóme Stefánsdóttir
Iceland / Eurovision 2012


Hún syngur hljótt í húminu,
Harmaljóð í svartnættinu.
Í draumalandi dvelur sá,
Sem hjarta hennar á.

Hann mænir út í myrkrið svart,
Og man þá tíð er allt var bjart.
Er hún horfin, var það satt,
Að ástin sigri allt?

   Og seinna þegar sólin vaknar,
   Sameinast á ný,
   Þær sálir tvær sem áður skildu,
   Ástin veldur því.

Kór:
     Mundu eftir mér, þegar morgunn er hér
     Þegar myrkrið loks, á enda er.
     Við verðum eitt og því ekkert fær breytt
     Að ég trúi því, að dagur renni á ný.

Hún minnist þess við mánaskin,
Er mættust þau í síðasta sinn.
Hann dreymir hana dag og nótt,
Að hún komi til hans skjótt.

   Og seinna þegar sólin vaknar,
   Sameinast á ný,
   Þær sálir tvær sem áður skildu,
   Ástin veldur því.

Kór:
     Mundu eftir mér, þegar morgunn er hér
     Þegar myrkrið loks, á enda er.
     Við verðum eitt og því ekkert fær breytt
     Að ég trúi því, að dagur renni á ný.

     Mundu eftir mér, þegar morgunn er hér
     Þegar myrkrið loks, á enda er.
     Við verðum eitt og því ekkert fær breytt
     Að ég trúi því, að dagur renni á ný.
     Því ég trúi því, að dagur renni á ný.
     Já, ég trúi því, að dagur renni á ný.
 

© Muzland.info/ - Chord Chart Server, Guitar
© Anton Gavzov